Innlent

Landspítalinn fær speglunartæki að gjöf

Actavis hefur fært svæfingardeild Landspítala Hringbraut að gjöf speglunartæki fyrir fullorðna og börn. Í tilkynningu frá spítalanum segir að um sé að ræða speglunartæki tengt skjá sem notað er til að barkaþræða sjúklinga fyrir svæfingar. „Tæki þetta er af nýjustu gerð og hentar bæði fyrir fullorðna og börn alveg niður í fyrirbura. Tækið hentar einnig við erfiðar barkarennuísetningar."

Þá segir að með tilkomu þessa tækis batni kennslumöguleikar barkarennuísetningar sem muni gagnast læknanemum, hjúkrunarnemum og bráðatæknum í þeirra verklega námi á Landspítala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×