Innlent

Vilja rækta tilapíu og flúru á Suðurnesjum

Norræn tilapía, eða hekluborri, verður fluttur út í fyrsta sinn frá Íslandi í næsta mánuði. Fyrirtækið Matorka er með áform um mikið borraeldi á Reykjanesi.
Norræn tilapía, eða hekluborri, verður fluttur út í fyrsta sinn frá Íslandi í næsta mánuði. Fyrirtækið Matorka er með áform um mikið borraeldi á Reykjanesi. Mynd/anton
Stefanía K. Karlsdótti
Tvö fyrirtæki vinna nú að því að hefja fiskeldi á Suðurnesjum og verður framleiðslan samtals um fimm þúsund tonn innan fárra ára ef hugmyndirnar ganga eftir. Einnig munu þá að minnsta kosti 110 manns vinna við þessar stöðvar.

Þetta eru fyrirtækin Íslensk matorka sem hyggst hefja eldi á 3.000 tonnum samtals af bleikju og norrænni tilapíu eða hekluborra. Að sögn Stefaníu K. Karlsdóttur, eins af eigendum fyrirtækisins, munu á bilinu 60 til 80 vinna við fiskeldið, slátrun, flökun og pökkun en einnig séu uppi hugmyndir hjá fyrirtækinu um enn frekari vinnslu á afurðinni. Hún segist enn fremur búast við því að framleiðslan hefjist þegar á næsta ári.

Hitt fyrirtækið er Stolt Sea Farm, sem hyggur á eldi á 2.000 tonnum af senegalflúru. Athafnasvæði fyrirtækisins verður um 600 metra vestan við Reykjanesvirkjun HS Orku. Ráðgert er að ekki færri en fimmtíu manns starfi við eldisstöðina en allt að 75 önnur störf gætu fylgt starfseminni að sögn Pablos Garcia, forstjóra Stolt Sea Farm. Hann segir að fyrirtækið hafi sótt um öll tilskilin leyfi og vonast hann til að hægt verði að hefja framkvæmdir á þessu ári. Áætlaður kostnaður við þær verður ekki minni en 2,5 milljarður en byggt verður á um sjö hektara svæði. „Við erum í þessu af fullri alvöru og ég get sagt það að eldisstöð sem þessi mun ekki eiga sinn líka í heiminum svo þetta mun heldur betur koma Íslandi á kortið í þessum geira,“ segir hann. Hann vonast til þess að getað kynnt þessi áform ítarlega á blaðamannafundi á Íslandi í næsta mánuði.

Hann segir enn fremur margar ástæður fyrir því að Ísland varð fyrir valinu. „Til dæmis kemur jarðhitinn sér vel og svo er Ísland afar jákvætt fyrir verkefnum sem þessum og hingað til höfum við ekkert nema gott um samskipti okkar við íslensk stjórnvöld að segja,“ segir Pablo. Fyrirtækið rekur nú þegar níu eldisstöðvar; þar af sex á Spáni, eina í Noregi, eina í Portúgal og eina í Frakklandi.

jse@frettabladid.is

Árni Sigfússon
Pablo Garcia



Fleiri fréttir

Sjá meira


×