Innlent

Reynt að girða fyrir spillingu þingmanna

Níundi fundurinn. Töluverðar umræður spunnust um tillögurnar á fundi stjórnlagaráðs í gær. Mynd/GVA
Níundi fundurinn. Töluverðar umræður spunnust um tillögurnar á fundi stjórnlagaráðs í gær. Mynd/GVA
Alþingismönnum verður gert óheimilt að taka þátt í afgreiðslu mála sem varða sérstaka og verulega hagsmuni þeirra eða einhverra þeim nákomnum, ef tillögur stjórnlagaráðs ná fram að ganga.

 

Tillagan er meðal nokkurra sem kynntar voru á níunda fundi ráðsins í gær. Fleiri nýmæli eru í tillögum svokallaðrar B-nefndar ráðsins, sem fjalla um störf Alþingis.

Í þeim er meðal annars kveðið á um að þingmönnum og ráðherrum verði gert skylt með lögum að skrá fjárhagslega hagsmuni sína og jafnframt að mönnum verði gert óheimilt að sinna öðrum störfum samhliða ráðherraembætti. Áður hafði verið lögð fram til kynningar tillaga um að ráðherrar þyrftu að víkja af þingi.

 

Þá var lagt til á fundinum í gær að víkka út stjórnarskrárákvæði um heimild Alþingis til að skipa rannsóknarnefndir. Þær þurfi ekki lengur að vera skipaðar alþingismönnum eins og verið hefur, þótt rannsóknarnefndir utanþingsfólks hafi verið skipaðar með sérstökum lögum.

 

Enn fremur er gerð tillaga um sérstaka eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis, sem muni geta kannað hvers kyns athafnir og ákvarðanir ráðherra. Samkvæmt tillögunni verður nefndinni gert skylt að hefja rannsókn að kröfu þriðjungs þingmanna. Nefndin á sér fyrirmyndir á hinum Norðurlöndunum, einkum í Noregi, að sögn Vilhjálms Þorsteinssonar, varaformanns B-nefndar.

 

Ein tillagan snýst um að þingmál falli ekki niður við lok hvers þings, heldur við lok kjörtímabils. Það kæmi í veg fyrir að mál sem ekki hljóta afgreiðslu þurfi að leggja fram á nýjan leik á nýju þingi og er einkum hugsað sem vernd fyrir þingmannafrumvörp, sem gjarnan mæta afgangi.

 

Loks er lagt til að eftir að þing er rofið verði að lágmarki sex vikur að líða fram að kosningum, til að nýjum framboðum gefist færi á að undirbúa sig. Nú er aðeins kveðið á um að ekki megi líða meira en 45 dagar frá þingrofi til kosninga.

Tillögurnar voru lagðar fram til kynningar og afgreiðslu inn í áfangaskjal að nýrri stjórnarskrá. stigur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×