Innlent

Gæti verið 80 kíló um jólin - tvö kíló fara að meðaltali á viku

Boði Logason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur misst fjögur kíló frá því hann fór í megrun.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur misst fjögur kíló frá því hann fór í megrun. Mynd úr safni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur misst 1,9 kíló frá því á mánudaginn. Hann hefur því misst tæplega fjögur kíló frá því hann byrjaði í megrun fyrir tveimur vikum síðan.

Hann byrjaði á megrunarkúr sem felst í því að borða einungis íslenskan mat. Þegar hann byrjaði á kúrnum sagði hann á heimasíðu sinni að hann myndi birta þyngdarmælingu á mánudögum næsta mánuðinn.

Í dag hafði hann ekkert skrifað um nýjar tölur, eins og hann lofaði, en nú undir kvöld setti hann stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni þar sem stóð: „104,1". Þarna er hann eflaust að vísa í þyngd sína, en hann setti stöðuuppfærsluna í gegnum BlackBerry-símann sinn.

Hann hefur misst tvö kíló á viku, þessar tvær vikur sem megrunin hefur staðið yfir. Ef hann heldur áfram að missa tvö kíló á viku, verður hann um 90 kíló í byrjun nóvember. Og þann 5. desember verður þingmaðurinn orðinn 80 kíló, samkvæmt úreikningum Vísis.

Á heimasíðu sinni má fylgjast með matarræði formannsins en fyrir helgi skrifaði hann eftirfarandi: „Fyrir nokkrum dögum gerði ég tilraun til að veiða mér fisk í matinn en það beit ekkert á. Það kom þó ekki í veg fyrir að ég borðaði þríréttað þann daginn. Krækiber í forrétt, bláber í aðalrétt og aðalbláber í eftirmat og gönguferðir inn á milli. Að vísu hef ég ekki náð að komast í gönguferð daglega eins og til stóð."

Hann er þó ekki bara í hollustunni því hann segist stundum stelast í nammið. „Á betri fundum stendur valið stundum á milli þess að borða súkkulaði og kexkökur eða ávexti með kaffinu. Ég hef því ekki farið alveg á mis við sælgæti og kex."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×