Ferrari Formúlu 1 ökumaðurinn Fernando Alonso verður við stjórnvölinn á Ferrari bíl um næstu helgi á heimavelli Ferrari liðsins, í Formúlu 1 kappakstrinum á Monza brautinni á Ítalíu. Rétt eins og Felipe Massa á samskonar bíl. Alonso vann mótið á Monza í fyrra.
Alonso sagði í fréttatilkynningu frá Pirelli dekkjaframleiðandanum í dag að það væri sérstök tilfinning að keyra í hröðustu keppni ársins á Monza og það væri líka sérstakt tilfinngalega á keyra Ferrari þar. Brautin er oft kölluð heimavöllur Ferrari, sem er ítalskst, rétt eins og Torro Rosso liðið.
„Það er ótrúlegt að vinna á Monza og að vinna þar á rauðum bíl (Ferrari) er enn ótrúlegra. Að vera á verðlaunapallinum og sjá þúsundir áhorfenda fyrir neða í rauðum skyrtum og með rauða fána er yfirþyrmandi tilfinning", sagði Alonso.
„Markmið okkar í ár er það sama og í fyrra. Að vinna mótið. Við höfum burði til þess, en vitum að keppinautar okkar eru sterkir. Ég er viss um að það verður spennandi keppni, eins og við höfum oft séð á þessu ári."
Pirelli dekkjaframleiðandinn er með höfuðstöðvar sínar á Ítalíu og sér öllum keppnisliðum fyrir dekkjum og byrjaði á því á þessu ári.
„Endurkoma Pirelli í Formúlu 1 hefur bætt skemmtangildið, sem var eitt af markmiðunum í upphafi árs og við verðum að þakka fyrir það og hvar er það betra en á heimavelli þeirra?", sagði Alonso.
Ferrari stefnir á sigur á heimavelli

Mest lesið





„Þeir spila mjög fast og komast upp með það“
Körfubolti

Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport
Enski boltinn



