Leikskólastarfsmaður sagðist á Facebook vilja kyrkja barn Ingimar Karl Helgason. skrifar 24. janúar 2011 13:15 Leikskólastafsmaðurinn lét ummælin falla í hálfkæringi. Þau voru engu að síður litin alvarlegum augum. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni / Stefán
Ummæli á Facebook hafa orðið til þess að fólk hefur verið rekið úr starfi. Dæmi er um að starfsmaður á leikskóla hafi sagst vilja kyrkja barn og goldið fyrir það með starfinu. Einnig eru dæmi um að konur hafi upplýst um óléttu á Facebook og verið reknar áður en þær tilkynntu vinnuveitanda um það formlega. Fréttastofu er kunnugt um dæmi um að fólk hafi misst vinnuna vegna annars konar ummæla á Facebook. Dæmi er um að starfsmaður leikskóla hafi verið rekinn úr starfi, eftir að hafa sagt í hálfkæringi á Facebook, að barn væri svo erfitt, að hann vildi helst kyrkja það. Starfsmaðurinn mun aldrei hafa lagt hendur á barnið eða neitt í slíka veru - en málið var litið mjög alvarlegum augum. Harpa Ólafsdóttir, sviðsstjóri hjá Eflingu, segir all nokkur dæmi um að fólk hafi verið rekið úr starfi fyrir ummæli á Facebook. „Það eru þá starfsmenn sem hafa verið að sinna annað hvort börnum eða öldruðum. Þeir hafa látið ýmis ummæli falla um viðkomandi skjólstæðing á Facebook síðu. Stundum hafa aðstandendur lesið þessar færslur og ekki verið sáttir." En hefur stéttarfélagið ekki beitt sér í þágu félagsmanna sinna í þessum málum? „Við höfum hreinlega þurft að vega það og meta í hverju tilviki fyrir sig, en vissulega grípum við til varna ef við teljum að það sé staða til þess, svo sannarlega." Harpa segir hins vegar að þau tilvik sem hafi komið upp á, hafi verið þannig vaxin að erfitt hafi verið að grípa til varna. Hún hvetur félagsmenn sína til að flíka ekki málum úr starfi sínu á Facebook.
Tengdar fréttir Barnshafandi konum sagt upp eftir stöðufærslur á Facebook Nokkur dæmi eru um það að konur hafi misst vinnuna eftir að hafa tilkynnt að þær væru barnshafandi á Facebook-síðum sínum áður en þær tilkynntu vinnuveitendum sínum það formlega. Vinnuveitendurnir hafi í kjölfarið sagt þeim upp störfum. 24. janúar 2011 06:30 Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira
Barnshafandi konum sagt upp eftir stöðufærslur á Facebook Nokkur dæmi eru um það að konur hafi misst vinnuna eftir að hafa tilkynnt að þær væru barnshafandi á Facebook-síðum sínum áður en þær tilkynntu vinnuveitendum sínum það formlega. Vinnuveitendurnir hafi í kjölfarið sagt þeim upp störfum. 24. janúar 2011 06:30