Erlent

Rússneskur njósnari orðinn þáttakynnir

Anna Chapman.
Anna Chapman.

Rússneski njósnarinn og kynbomban Anna Chapman er orðinn þáttastjórnandi í rússneskum ráðgátu-þætti. Anna varð heimsfræg þegar í ljós kom að hún hafði starfað sem rússneskur njósnari í Bandaríkjunum. Í dag er hún heimsfræg, ekki síst fyrir kynþokkann.

Þátturinn sem hún stjórnar fjallar um dularfullar ráðgátur. Í fyrsta þættinum greindi hún frá því að barn hefði fundist með fæðingarbletti sem líktist ritningargrein úr Kóraninum. Sjálf huldi hún fagurrautt hárið með Búrka þegar hún kynnti ráðgátuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×