Innlent

Fimmtugur karlmaður handtekinn eftir innbrot

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður um fimmtugt var handtekinn í miðborginni í gær eftir að hafa brotist þar inn í íbúð. Maðurinn hafði tekið nokkra hluti ófrjálsri hendi og borið þá í bíl sinn þegar lögreglan kom á vettvang.

Annar maður á svipuðu reki var líka gripinn við vafasama iðju í hverfinu í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði sá reynt að brjótast inn í geymslu en varð frá að hverfa þegar til hans sást. Viðkomandi freistaði þess að komast undan á tveimur jafnfljótum en hafði ekki erindi sem erfiði og var sömuleiðis færður í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×