Innlent

Aukamiðar í Herjólfs - tímabundin fjölgun farþega

Rekstraraðili Herjólfs, Eimskip, hefur fengið leyfi til að fjölga tímabundið farþegum um borð í kring um Þjóðhátíð. Um er að ræða ferðir Herjólfs á fimmtudegi og föstudegi fyrir Þjóðhátíð og mánudag og þriðjudag eftir hana.

Fjölgunin þýðir að um 130 farþegar verða í hverri ferð. Sala á aukamiðum hófst klukkan 13.00 í dag.

Farþegum er bent á að best er að bóka miða á www.herjolfur.is Mikið álag er á símakerfi Herjólfs og því mjög erfitt að ná sambandi við afgreiðslur.

Ekki er unnt að breyta miðum sem þegar hafa verið keyptir fyrir þessa nýju miða. Farþegar eru beðnir afsökunar á því.

Uppselt er fyrir bíla í allar ferðir um Verslunarmannahelgina og því ekki hægt að bóka bíl með þessum aukamiðum. Farþegar geta geymt bíla sína í Landeyjahöfn eða tekið áætlunarbíl frá Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×