Innlent

Þyrlan sótti veika konu um borð í skemmtiferðaskip

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veika konu um borð í skemmtiferðaskip norðaustur af Langanesi í gærkvöldi og fluttu hana á sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem hún liggur nú.

Beiðni kom frá skipinu, sem var að koma úr norðurhöfum, um að konan, sem er farþegi á skipinu yrði sótt sem fyrst þar sem skipið kæmi ekki til Akureyrar fyrr en í dag.

Leiðangurinn gekk að óskum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×