Innlent

Aldrei fleiri erlendir gestir

Erlendir gestir hafa aldrei verið jafn margir í janúar og í ár, frá því að Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð.

Fram kemur á vef iðnaðarráðuneytisins að um 22 þúsund erlendir gestir hafi farið frá landinu í janúar. Brottfarir hafi verið 3.500 fleiri en í janúar 2010. „Erlendum gestum fjölgaði því um 18,5 prósent í janúarmánuði á milli ára," segir þar.

Þá kemur fram að umtalsvert fleiri Íslendingar hafi farið utan í janúar í ár en í fyrra. - óká








Fleiri fréttir

Sjá meira


×