Erlent

Börn stundi líkamsrækt frá fæðingu

Yfirvöld vonast til þess að aukin hreyfing ungra barna muni hjálpa til við að leysa offituvandann.
Yfirvöld vonast til þess að aukin hreyfing ungra barna muni hjálpa til við að leysa offituvandann. Mynd/Vilhelm
Yfirvöld í Bretlandi birtu í dag ný viðmið þess efnis að öll börn undir fimm ára aldri skuli stunda líkamsrækt á hverjum degi. Þessum leiðbeinandi tilmælum er beint til foreldra og miða að því að draga úr offituvandamálinu þar í landi.

Breska heilbrigðisráðuneytið segir að þau börn undir fimm ára aldri sem geta gengið skuli vera líkamlega virk í að minnsta kosti 3 klukkutíma á dag, en foreldrar skuli hvetja þau börn sem enn hafa ekki lært að labba til að leika sér á maganum og fara með börnin í sund.

Þá eru foreldrar jafnframt beðnir að draga úr þeim tíma sem börnin þeirra eyða hreyfingarlaus fyrir framan sjónvarpið eða í barnavögnum.

Yfirvöld vona að þessi nálgun muni draga úr líkum á því að börn verði í yfirþyngd þegar þau verða fullorðin, en offita eykur líkur á hjartasjúkdómum, sykursýki og krabbameini.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×