Kaliforníutilraun með lýðræðið 2. maí 2011 23:00 Þegar kosið er í í Kaliforníu eru kjörstaðir settir upp á ólíklegustu stöðum, þar á meðal á þessari bílasölu í Beverly Hills. Nordicphotos/AFP
Í lok ársins 1996 birtist í tímaritinu The Economist ítarleg úttekt á beinu lýðræði, þar sem hvatt var til róttækra breytinga á framkvæmd lýðræðis í nútímaríkjum. Höfundar úttektarinnar og leiðarahöfundar tímaritsins töldu augljóst að beint lýðræði myndi fá aukið vægi þegar kæmi fram á 21. öldina en vægi fulltrúalýðræðis myndi að sama skapi minnka. Þeir hvöttu til þess að fjölga mjög þjóðaratkvæðagreiðslum, svo almenningur í lýðræðisríkjum gæti í auknum mæli tekið ákvörðunarvaldið í sínar hendur. Völd og áhrif atvinnustjórnmálamanna myndu jafnframt dvína. Í síðustu viku birtist svo í sama tímariti önnur úttekt á beinu lýðræði, ekki síður ítarleg en sú fyrri, en í þetta sinn virðast höfundarnir komnir með bakþanka: Beina lýðræðið virkar ekki alltaf sem skyldi. Leiðir af sér glundroðaBakþankarnir stafa einkum af reynslunni frá Kaliforníu, þar sem beint lýðræði hefur verið stundað í ríkum mæli síðan 1978, en þá var svonefnd „Tillaga 13" borin undir íbúa ríkisins. Hún snerist um lækkun eignaskatts, og var samþykkt með 57 prósentum atkvæða þrátt fyrir andstöðu beggja stóru stjórnmálaflokkanna. Síðan þá hafa Kaliforníubúar verið einstaklega duglegir við að efna til þjóðaratkvæðagreiðslna um alls kyns málefni, stór sem smá. Höfundar úttektarinnar í The Economist segja þessa tilraun með beint lýðræði í Kaliforníu augljóslega hafa mistekist. „Löggjöf almennings hefur leitt af sér glundroða. Margar tillögurnar hafa annaðhvort lækkað skatta eða aukið útgjöld, og þar með gert mönnum enn erfiðara að koma jafnvægi á ríkisfjármálin. Sumar eru svo vanhugsaðar að afraksturinn er andstaða þess sem lagt var upp með." Ofvaxinn skuldavandiHitamál Andstæðingar þess að múslimar fengju að reisa bænaturna háðu harða baráttu þegar málið var borið undir kjósendur í Sviss árið 2009.nordicphotos/AFPÞrátt fyrir náttúrufegurð, fjölbreytt mannlíf og ólgandi frumkvöðlastarf, bæði í kvikmyndageiranum og tölvugeiranum, er Kalifornía að sligast undan skuldum. Atvinnuleysi er tólf prósent, sem er meira en í langflestum ríkjum Bandaríkjanna. Í Kaliforníu búa nærri 40 milljónir manna. Þetta er fjölmennasta ríki Bandaríkjanna og framleiðslan þar er 13 prósent af þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna. Fjárhagsvandræði Kaliforníu hafa því veruleg áhrif á efnahagslíf allra Bandaríkjanna. Ástæðu skuldavandans og þar með meginástæðu fjárhagsvanda Kaliforníu má, að sögn Economist, að miklu leyti rekja til mislukkaðra ákvarðana sem teknar hafa verið í þjóðaratkvæðagreiðslum. Lamað þingTíðar þjóðaratkvæðagreiðslur eru sömuleiðis sagðar ástæða þess að framkvæmdarvaldið er veikburða og löggjafarvaldið nánast lamað. „Hver vill sitja á þingi þar sem 70-90 prósentum fjárlaganna hefur fyrirfram verið úthlutað?" spyr The Economist. „Þeir malbikuðu paradís og settu upp kjörklefa." Í tímaritinu er vitnað í James Madison, einn svonefndra „landsfeðra Bandaríkjanna" og helsta höfund bandarísku stjórnarskrárinnar, sem á sínum tíma skrifaði: „Almenningsstjórn án almennra upplýsinga eða möguleikanna til þess að verða sér úti um þær er ekkert annað en forleikur að skrípaleik eða harmleik, nema hvort tveggja sé." Samt við bjargandiÞeir hjá Economist eru þó engan veginn á því að gefa beint lýðræði upp á bátinn, þrátt fyrir vandkvæðin á framkvæmd þess sem reynslan frá Kaliforníu hefur dregið fram í dagsljósið. Þvert á móti telja þeir vel mögulegt að standa þannig að verki, að beint lýðræði verði til góðs frekar en ills. Ýmsa hnökra verði að sníða af útfærslunni, eins og hún hefur verið í Kaliforníu, og þá geti allt gengið eins og í sögu. „Almennilegt lýðræði er miklu meira en stöðugt kosningaferli," skrifar leiðarahöfundurinn hjá Economist. „Það verður að fela í sér ígrundun, þróaðar stofnanir og aðhaldskerfi á borð við það sem innbyggt er í bandarísku stjórnarskrána." Geðþóttavald þjóðarÞótt meginhugmyndin með lýðræði sé sú að þjóðir eigi sjálfar að taka ákvarðanir í eigin málum, oftast með milligöngu kjörinna fulltrúa þjóðarinnar, þá hefur lýðræðisfyrirkomulag nútímaþjóðfélaga einnig verið byggt á þeirri grundvallarhugmynd að skipta ríkisvaldinu í löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald. Tilgangurinn með þeirri þrískiptingu er sá, að þessar þrjár greinar ríkisvaldsins hafi eftirlit og aðhald hver með annarri. Með þessu gagnkvæma aðhaldi er komið í veg fyrir það geðþóttavald, sem einvaldskonungar og aðalsstéttir höfðu áður. Aðhaldslaust geðþóttavald þjóðarinnar getur varla verið það, sem talsmenn beins lýðræðis eru að biðja um, enda eru þjóðir ekki síður misvitrar en einvaldskonungar. Hugsandi þjóðþingÞessu virðast þeir, sem starfa hjá The Economist, hafa gert sér fulla grein fyrir strax árið 1996, þegar þeir hófu herferð sína í þágu beins lýðræðis. Þeir settu strax þá ýmsa fyrirvara og vísuðu meðal annars til langrar reynslu Svisslendinga af þjóðaratkvæðagreiðslum. „Fyrsti lærdómurinn af reynslu Svisslendinga er sá, að beint lýðræði er erfiðisvinna," skrifuðu þeir árið 1996. „Annar er sá, að þótt það dragi úr mikilvægi stjórnmálamanna þá hefur það ekki í för með sér að vel hugsandi þjóðþing verði óþarft." Vanda þarf til verkaLykilatriðið, að mati Economist, er að beint lýðræði megi ekki vera ráðandi afl eða drifkraftur stjórnmálaþróunarinnar. Þess í stað þarf það að fá aftur það hlutverk að vera öryggisventill þegar fulltrúalýðræðið fer út af sporinu, eins og hugmyndin var upphaflega þegar beinu lýðræði var komið á í Kaliforníu fyrir um hundrað árum. Gera þarf ýmsar breytingar á fyrirkomulagi þjóðaratkvæðagreiðslna, hvernig til þeirra er stofnað og hvernig að þeim er staðið. „Það þarf að verða miklu erfiðara að koma með tillögur. Þær þurfa að vera styttri og einfaldari, þannig að kjósendur geti raunverulega skilið þær. Í texta þeirra þarf að taka fram hver kostnaðurinn við þær verður, og hvaðan það fé á að koma. Og nái þær fram að ganga, þá þarf löggjafarþingið að geta gert á þeim breytingar."
Mest lesið Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Erlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Fleiri fréttir Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Hefur sakamálarannsókn á stjórnarandstöðunni Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Segir af sér og flýr land Minnst níutíu mótmælendur drepnir í Bangladess Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Sjá meira