Erlent

Súkkulaðijöfur lést af slysförum

Kinder eggin heimsfrægu.
Kinder eggin heimsfrægu.
Ítalski súkkulaðijöfurinn Pietro Ferrero lést af slysförum í Suður Afríku samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins.

Pietro var stjórnarformaður Ferrero group sem framleiðir Nutella-súkkulaði og Kinder eggin frægu. Faðir Pietro er ríkasti maður Ítalíu.

Pietro Ferrero.
Ekki er ljóst með hvaða hætti Pietro lést en hann var að störfum í Suður Afríku. Hann var 48 ára gamall þegar hann lést og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Viðbót: Samkvæmt AP fréttastofunni lést Pietro í Suður Afríku eftir að hann féll af reiðhjóli sínu í Höfðaborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×