Innlent

Atvinnuflugmenn samþykktu kjarasamning

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Atvinnuflugmenn, sem starfa hjá Icelandair Group, samþykktu nýjan kjarasamning. Kosningu um samninginn lauk í dag og var hann samþykktur með 183 atkvæðum á móti 41, en átta sátu hjá. Kjörsókn var 82%.

Skrifað var undir samninginn 19. júlí síðastliðinn eftir að sá sem skrifað var undir þremur vikum áður var felldur í allsherjarkosningu félagsmanna. Sá nýji var svo kynntur miðvikudaginn 20. júlí og hófst kosning þá um morguninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×