Innlent

Gera ráð fyrir að selja tæplega 600 þúsund lítra af bjór

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ljóst er að fjöldi manna mun heimsækja Vínbúðirnar í vikunni.
Ljóst er að fjöldi manna mun heimsækja Vínbúðirnar í vikunni.
Gert er ráð fyrir að um 125 þúsund viðskiptavinir heimsæki Vínbúðirnar í vikunni sem er að líða eða 25 - 30% fleiri en vikuna á undan. Árið 2010 komu 124 þúsund viðskiptavinir sem er svipaður fjöldi og árið áður. Þá voru seldir 744 þúsund lítrar af áfengi þar af 587 þúsund lítrar af bjór.

Eins og í hefðbundinni viku þá koma flestir viðskiptavinir á föstudegi. Ef miðað er við fjöldann undanfarin ár er gert ráð fyrir að um 43 þúsund viðskiptavinir versli í Vínbúðunum þann dag.

Í fyrra voru seldir 287 þúsund lítrar föstudaginn 30. júlí. Þar af voru 228 þúsund lítrar af bjór. Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi nú verði svipaður og í fyrra og er undirbúningur í fullum gangi til að hægt verði að taka vel á móti viðskipavinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×