Innlent

Ný grein um Hæstarétt Íslands

Mynd GVA
Stjórnlagaráð hefur samþykkt 6. kafla draga um dómsvald í drögum að nýrri stjórnarskrá.

Í kaflanum kemur fram ný grein um Hæstarétt Íslands þar sem segir að að hann sé æðsti dómstóll ríkisins og hafi endanlegt vald til að leysa úr öllum málum sem lögð eru fyrir dómstóla. Þó megi ákveða með lögum að sérstakur dómstóll leysi endanlega úr ágreiningi um kjarasamninga og lögmæti vinnustöðvana, þó þannig að ákvörðunum hans um refsingu verði skotið til annarra dómstóla. Í kaflanum kemur enn fremur fram að sjálfstæði dómstóla skuli tryggja með lögum og skipan ákæruvaldsins skuli ákveðin með lögum.  

 

Búast má við að atkvæðagreiðsla um frumvarpið í heild fari fram innan skamms. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×