Innlent

Forsetaframbjóðandi mun þurfa miklu fleiri meðmælendur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá fundi stjórnlagaráðs í gær. Mynd/ Bjarni.
Frá fundi stjórnlagaráðs í gær. Mynd/ Bjarni.
Forsetaframbjóðandi mun þurfa að hafa meðmæli minnst eins af hundraði kosningabærra manna og mest tveggja af hundraði, verði tillögur stjórnlagaráðs að veruleika. Þetta jafngildir því að hann muni þurfa um 2200 meðmælendur en þarf í dag einungis 1500.

Síðasti ráðsfundur Stjórnlagaráðs hófst klukkan 10 í morgun og hefur kafli um forseta Íslands verið samþykktur á fundinum. Kaflinn er alls 10 ákvæði sem eru mun færri ákvæði en í núgildandi stjórnarskrá.

Fram kemur að forseti skuli ekki sitja lengur en þrjú kjörtímabil. Þá er kveðið á um að forseti Alþingi sé staðgengill forseta Íslands geti hann ekki gegnt störfum sínum um sinn vegna heilsufars eða öðrum ástæðum. Í núgildandi stjórnarskrá eru staðgenglar forsetans þrír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×