Innlent

Stór jarðskjálfti við Goðabungu

Jarðskjálfti upp á 3,2 á Rishter varð um það bil fimm kílómetra aust-suðaustur af Goðabungu í Mýrdalsjökli laust fyrir klukkan eitt í nótt.

Upptök hans voru á um 1,5 kílómetra dýpi. Að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur á eftirlits- og spásviði Veðurstofunnar, hefur enginn hlaupórói sést á mælum í kjölfar skjálftans, sem var sá snarpasti á þessum slóðum, um nokkurt skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×