Innlent

Slapp ómeiddur úr bílveltu

Ungur ökumaður, sem var einn á ferð, slapp ómeiddur þegar bíll hans valt út af Skeiðavegi á móts við bæinn Kílhraun um kvöldmatarleitið í gær og valt að minnsta kosti heila veltu uns hann nam staðar á hvolfi.

Að sögn lögreglu missti hann bílinn út fyrir slitlagið, en reyndi of snöggt að ná honum inn á það aftur þannig að bíllinn snérist og valt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×