Þorsteinn Ingi Garðarsson, framkvæmdastjóri 101 Skuggahverfis, vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið og benti á Inga Guðmundsson, framkvæmdastjóra Landeyjar.
Ingi segir flest viðbrögðin hafa komið frá fjárfestum og verktökum, eða öðrum aðilum „með tengingu í geirann". Byggingarnar seljast í núverandi ástandi að innan, það er rúmlega fokheldar, og fullbúnar að utan, og eru metnar á þriðja milljarð króna. Hann býst við að tilboð fari að berast öðru hvoru megin við helgina.
„Það er greinilegur áhugi fyrir þessu," segir Ingi. „Það er ljóst að þessar eignir eru upp á þriðja milljarð, en það er erfitt að fullyrða um hugmyndir að tilboðum."
Byggingarnar tvær eru hluti af Áfanga 2 hjá 101 Skuggahverfi. Virði hans var bókfært á 1,9 milljarða um síðustu áramót, samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2010. Félagið skuldaði þá 6,3 milljarða króna í heild og þar af voru skuldir við Arion banka upp á 6,1 milljarð.
Byggingarnar voru auglýstar til sölu fyrir um ári. Þá bárust tvö eða þrjú tilboð sem ekki náðist að ganga frá, og því var fallið frá söluferlinu. Frestur til að skila inn tilboðum í þetta sinn er ótakmarkaður.

Til stendur að selja íbúðir á Vatnsstíg 14 í smásölu. Verktakafélagið Arcus ehf. keypti Lindargötu 35 fyrir um tveimur mánuðum á 170 milljónir króna. Níu íbúðir eru í húsinu og var það selt í sama ástandi og fyrrgreindar blokkir.
Þorvaldur H. Gissurarson, eigandi Arcus, áætlar að framkvæmdir við húsið klárist í maí á næsta ári og til stendur að selja íbúðirnar í smásölu.
sunna@frettabladid.is