Erlent

Endeavour á leið til jarðar

Geimferjan Endeavour er á leið til jarðar. Hún leysti festar frá Alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Þetta er síðasta ferð Endeavour út í geiminn. Hún mun lenda á jörðinni á miðvikudag og þar verður hún sett á geimferðasafn í Kaliforníu. Þá verður aðeins eftir ein geimferja í bandaríska ferjuflotanum. Það er Atlantis sem fer í sína síðustu ferð í júlí næstkomandi. Þegar hún lendir verður lokið 30 ára merkum kafla í geimferðasögu Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×