Erlent

Þrettán létust í skotárás í brasilískum skóla

MYND/AP
Að minnsta kosti þrettán liggja í valnum eftir að byssumaður hóf skothríð í skóla í Rio De Janeiro í Brasilíu í dag. Árásarmaðurinn er á meðal hinna látnu en óljóst er hvort hann hafi fallið fyrir kúlum lögreglunnar eða hvort hann hafi framið sjálfsmorð að ódæðinu loknu.

Ekkert er enn vitað um ástæður árásarinnar en Sky fréttastofan hefur eftir vitnum á staðnum að tuttugu hafi særst til viðbótar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×