Erlent

Ætlar að safna milljarði dala

BArack Obama
BArack Obama
Barack Obama og Joe Biden tilkynntu í gær að þeir ætluðu að gefa kost á sér til annars kjörtímabils sem forseti og varaforseti Bandaríkjanna.

„Við höfum alltaf vitað að varanlegar breytingar koma hvorki hratt né auðveldlega,“ sagði Obama í gær. Í kosningabaráttu sinni fyrir þremur árum hafði hann lofað að gera gagngerar breytingar á bandarískum stjórnmálum.

Næstu kosningar verða haldnar í nóvember árið 2012. Þeir Obama og Biden eru snemma á ferðinni að þessu sinni vegna þess að þeir þurfa að safna einum milljarði dala, eða nærri 115 milljörðum króna, í kosningasjóð.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×