

Af leikskólamálum
Ef bæta á tiltekna þjónustu eða greiða hærri laun verða borgarbúar að borga hærri skatta eða þeir sem nota þjónustuna að greiða meira fyrir hana. Það er bara þannig. Borgin verður að sýna traustan rekstur ef ekki á illa að fara. Er það enn mikilvægara á óvissutímum eins og þeim sem hafa ríkt undanfarin ár og ekki sér alveg fyrir endann á. Allt gengur þetta sæmilega fyrir sig á meðan allir eru tiltölulega raunsæir og gera eðlilegar kröfur. Eitt leikskólapláss kostar um 2 milljónir á ári. Kostnaðarhlutur foreldra í Reykjavík er innan við 15%.
Síðsumars samþykktu leikskólakennarar í Reykjavík og annars staðar kjarasamning sem þeir töldu góðan og viðsemjendur þeirra ásættanlegan. Sá samningur hljóðaði upp á 7,6% launahækkun við undirritun samnings sem var um 3 prósentum meira en það sem taxtar annarra háskólafélaga hækkuðu. Þar gekk fólk sátt frá samningaborði.
Fyrir samningana var nokkur hiti í leikskólakennurum eins og oft er þegar sest er niður við samningaborð. Horfði Félag leikskólakennara mjög til kjara félagsmanna sinna í Reykjavík en þau höfðu verið nokkuð betri en hjá öðrum félagsmönnum innan félagsins frá árinu 2008. Ástæðan var sú að Reykjavík greiddi launauppbót sem starfsfólk leikskólanna í Reykjavík og hjá fleiri sveitarfélögum á landinu höfðu fengið árið 2007. Öll önnur sveitarfélög höfðu hins vegar afnumið launauppbótina, í kjölfar efnahagshrunsins.
Launauppbótin, greiðsla fyrir 10 tíma yfirvinnu á mánuði, var einföld yfirborgun. Henni var komið á vegna þess að erfitt var að ráða fólk til leikskólanna 2007 þegar allt var á bullandi yfirsnúningi í þjóðfélaginu. Leikskólarnir voru undirmannaðir á þessum tíma og hið góða starfsfólk þeirra vann undir miklu álagi.
Eftir hrun breyttist þetta nokkuð. Til dæmis gekk betur að fá fólk til starfa í leikskólum. Hins vegar rýrnuðu kjör allra í þjóðfélaginu gríðarlega. Spara þurfti á öllum sviðum, m.a. á öllum stigum skólakerfisins. Þrátt fyrir að leitað hafi verið að öllum mögulegum sparnaðarráðum var ákveðið að starfsfólk leikskólanna í Reykjavík fengi áfram að halda launauppbótinni. Brugðið var á það ráð að sameina leikskóla og spara við yfirstjórn skólanna frekar en að skerða laun. Sá sparnaður mun skila umtalsverðum ávinningi til lengri tíma litið.
Talsmenn Félags leikskólakennara töluðu því um „Reykjavíkurleiðina" svokölluðu þegar þeir settust niður við samningaborðið í sumar. Þeir vildu ná sambærilegum kjörum fyrir alla sína félagsmenn og boðið hafði verið upp á í Reykjavík frá 2007. Af hálfu Reykjavíkurborgar var því alltaf haldið til haga í viðræðum um kjarasamninginn að ef niðurstaðan yrði sú sem Félag leikskólakennara sóttist eftir þá myndi launauppbótin, sem Reykjavík hafði ein greitt eftir hrun, falla niður. Laun leikskólakennara í Reykjavík yrðu þá sambærileg við það sem tíðkast hjá öðrum sveitarfélögum enda væri þá launauppbótin komin inn í kjarasamninga.
Formaður FL var því vel búinn undir það að launauppbótin yrði afnumin eftir því sem launahækkanir skiluðu sér til félagsmanna. Enda sagði hann í Fréttablaðinu (22. nóvember sl.) að leikskólakennarar hefðu búist við þessu.
Gert er ráð fyrir að launauppbótin verðin afnumin í fjórum áföngum fram til ársins 2014. Þó að engin málefnaleg ástæða sé til þess að reykvískir leikskólakennarar fái hærri laun en félagar þeirra í öðrum sveitarfélögum þýðir þetta aðlögunarferli samt að allan samningstímann verða leikskólakennarar í Reykjavík með ívið hærri laun en félagar þeirra í öðrum sveitarfélögum þar sem launauppbótin verður afnumin í þrepum eftir því sem hækkanir umfram aðra samninga koma inn.
Það er líka mikil einföldun sem komið hefur fram í fjölmiðlum að verið sé að taka greiðslur fyrir svokallað neysluhlé af leikskólakennurum. Þeir hafa fengið greitt fyrir að borða með börnunum og hefur vinnutími þeirra styst á móti. Vinni þeir lengur fá þeir greidda yfirvinnu. Ef þetta væri ekki svona þá hefðu öll hin sveitarfélögin, sem líka greiddu launauppbótina fyrir hrun, verið að brjóta gegn samningi við leikskólakennara þegar þeir afnámu launauppbótina.
Þegar ákveðið var að afnema launauppbótina varð að skoða kjör annarra stétta sem vinna hjá leikskólunum. Þar vinnur einnig fólk sem heyrir undir stéttarfélagið Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Þetta fólk fékk umtalsvert minni launahækkanir í sínum samningum en leikskólakennarar. Eru kjörin lægst hjá Eflingarhópnum. Því var ákveðið að þessi hópur héldi launauppbótinni enn um sinn.
Mér finnst persónulega ekki sanngjarnt að kjarabót eins verði til þess að kjör annarra rýrni. Ég vil ekki standa fyrir því að rýra kjör þeirra sem lægstu launin hafa.
Kjarasamningar hafa nú verið gerðir við alla starfshópa hjá Reykjavíkurborg. Er það fagnaðarefni að tekist hafi að ljúka þeim með farsælum hætti. Það er einlæg von mín að við getum gert betur og betur við starfsfólk borgarinnar, t.d. með því að bæta starfsumhverfi, eftir því sem hagur okkar batnar. Að því mun ég stefna.
Skoðun

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar