Garðurinn lagður í rúst - kemst ekki inn til sín 1. ágúst 2011 15:28 Ægir Geirdal. Mynd/Heiða Helgadóttir „
Það er til háborinnar skammar að ráðast á mann með þessum hætti,“ segir Ægir Geirdal, íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann kom heim á þriðja tímanum í dag úr nokkra daga fríi og var aðkoman vægast sagt slæm. Ægir segir skemmdarvarga hafa eyðilagt garðinn hans, rótað öllu upp og fært grjót til auk þess búið er að brjóta garðhúsgögn og stela reiðhjóli. Grjót og mold veldur því að hann getur ekki ekið bílnum sínum inn í bílskúrinn. Til að bæta gráu ofan á svart kemst Ægir ekki heldur inn í íbúð sína sem er í parhúsi. „Ég kemst ekki inn því það er búið að troða einhverjum andskotanum í skrárnar að húsinu.“ Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Suðurnesjum eru lögreglumenn komnir á vettvang. Lögreglu barst ábending um skemmdarverkin um helgina. Ægir undrast að lögreglan hafi ekki haft samband og látið hann vita um skemmdirnar. Ægir komst í fréttirnar í nóvember á síðasta ári þegar tvær konur ásökuðu hann um að hafa misnotað þær á unglingsaldri. Um er að ræða systur sem opnuðu bloggsíðu á netinu þar sem þær greindu í smáatriðum frá samskiptum sínum við Ægi. Hann hefur vísað ásökunum á bug og sagt konurnar á höttunum eftir peningum. „Það er gjörsamlega búið að eyðileggja mannorð mitt,“ segir Ægir nú. Eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum varð Ægir að eigin sögn fyrir hótunum tveggja nágranna sem búa í sömu götu og hann í Vogum á Vatnsleysuströnd. Annar þeirra hafi ennfremur skotið golfkúlum að honum og hótað að drepa hann. Ægir er sannfærður að annar mannanna standi á bak við skemmdarverkin á lóð hans. „Einn nágranni hefur hótað að drepa mig og réðst á mig í janúar. Pósturinn varð vitni að því,“ segir Ægir og bætir við að það mál komi fyrir dómstóla í haust. „Þetta eru ekki einhverjir krakkar. Þetta er fullorðið fólk.“ Ægir segir málið mjög alvarlegt. „Ég get alveg hagað mér svona en ég fer réttu leiðina og kæri,“ segir Ægir en bætir við að hann get vel varið sig. Hann eigi haglabyssu.
Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Fleiri fréttir Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Sjá meira