Erlent

Dagblað sektað vegna ritdóms

Breska blaðið The Daily Telegraph hefur verið sektað vegna ritdóms Lynns Barber frá árinu 2008 um bókina Seven Days in the Art World sem Sarah Thornton skrifaði.

Það var mat rithöfundarins að gagnrýnin væri rætin auk þess sem í henni væru margar alvarlegar villur. Thornton höfðaði þess vegna mál og hefur blaðið nú verið dæmt til þess að greiða henni 65 þúsund pund eða rúmar 12 milljónir íslenskra króna.

Stjórnendur The Daily Telegraph hyggjast áfrýja dómnum. Talið er að niðurstaðan verði fordæmisgefandi.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×