Erlent

Kung fu flugfreyjur hjá kínverska ríkisflugfélaginu

Flugfreyjum hjá kínverska ríkisflugfélaginu er nú boðið að sækja námskeið í bardagaíþróttinni Kung fu til að verjast drukknum farþegum sem eiga það til að setja hendur sínar á óviðeigandi staði á líkama flugfreyjanna.

Sifu Lu Heng sem kennir stúlkunum að eiga við flugdólgana, segir að minnsta kosti þrjú tilvik dólgsláta koma upp í viku hverri. Kung fu sé sjálfsvörn sem henti mjög vel í návígi og nú hafi freyjurnar lært handbrögð sem slá flugdólgana kalda á örfáum sekúndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×