Innlent

Missti stjórn á bílnum þegar dekkið sprakk

Hellisheiði
Hellisheiði Mynd/Páll
Þrjú ungmenni sluppu ómeidd þegar að fólksbíll sem þau voru í fór út af veginum á Hellisheiðinni fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni, sem kom að slysinu, virðist sem dekk hafi sprungið á bílnum og ökumaðurinn misst stjórn bílnum í kjölfarið. Mikill vindur er á heiðinni og biður lögreglan á Selfossi fólk um að keyra varlega og hafa öryggisbeltin spennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×