Innlent

Lúðustofninn bágborinn - vilja banna beinar veiðar

Þrátt fyrir að risalúður veiðist af og til við landið er ástand stofnsins bágborið.
Þrátt fyrir að risalúður veiðist af og til við landið er ástand stofnsins bágborið. MYND/Vikari.is

Ástand lúðustofnsins hér við land er mjög bágborið og rannsóknir á stofninum ófullnægjandi. Þetta kemur fram í greinargerð sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur látið taka saman.

Ráðherrann skipaði starfshóp sem sæti áttu í starfsmenn ráðuneytisins, Fiskistofu og Hafró. Á meðal þess sem fram kemur í greinargerðinni er að engin aflamarksstýring er á lúðuveiðum en meirihluti lúðuafla berst sem meðafli. „Auk þess eru stundaðar beinar línuveiðar á lúðu með svokallaðri haukalóð og hefur sú veiði farið vaxandi á undanförnum árum," segir ennfremur.

Hafrannsóknarstofnunin hefur um árabil lagt áherslu á að stöðva beinar lúðuveiðar og í greinargerðinni er tekið undir þá tillögu um leið og öðrum möguleikum til að takmarka sókn í stofninn er velt upp.

Engar ákvarðanir liggja fyrir og er málið nú í höndum ráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×