Innlent

Telja fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða

Lögreglan á Akureyri telur nú fullvíst að kveikt hafi verið í íbúðarhúsi við Eiðsvallagötu um helgina, þar sem fjögur ungmenni björguðust naumlega út, eftir að vegfarandi hafði vakið þau.

Öll ummerki þykja benda til íkveikju, en engin liggur undir grun og engin vitni eru að mannaferðum við húsið, áður en eldsins varð vart. Lögreglan er hinsvegar að vinna úr vísbendingum, sem henni hafa borist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×