Erlent

Tortímandinn snýr aftur - orðinn 63 ára

Arnold Schwarzenegger fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, hefur samþykkt að snúa aftur í hlutverki vélmennisins í Terminator í fimmta skiptið. Þetta er í það minnsta fullyrt á heimasíðunni deadline.com. Þar segir að leikstjórinn verði Justin Lin, sem gerði Fast&Furious 5. Arnold, sem margoft hefur sagst ætla að snúa aftur, er orðinn 63 ára gamall og verður forvitnilegt að sjá hann skella sér í leðurdressið enn einu sinni.

Reyndar fylgir sögunni að vogunarsjóður einn hafi keypt réttinn að Terminator vörumerkinu í febrúar síðastliðnum og því þurfi framleiðendurnir að semja við sjóðinn áður en nokkuð verður af gerð myndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×