Innlent

Sveinn Andri og Kristrún Ösp hætt saman

Kristrún Ösp og Sveinn Andri voru saman í rúmlega tvo mánuði.
Kristrún Ösp og Sveinn Andri voru saman í rúmlega tvo mánuði.
Stjörnulögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson og fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir eru hætt saman. Fram kom á Facebook-síðu Sveins Andra nú í kvöld að hann væri nú „einhleypur."

Sveinn Andri neitaði sambandsslitunum í samtali við fréttastofu í dag en skötuhjúin hafa verið saman í rúmlega tvo mánuði.

Sveinn Andri er á meðal þekktustu lögmanna landsins og áður en hann byrjaði með Kristrúnu var hann oft talinn vera heitasti piparsveinn landsins. Kristrún Ösp, sem er liðlega tvítug, hefur starfað sem fyrirsæta undanfarin ár og getið sér gott orð í bransanum. Samband hennar og Dwight York, sem á árum áður gerði garðinn frægan hjá Manchester United vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×