Innlent

Hlupu með sundgleraugu og buff

Sveinn hleypur í öskufokinu
Sveinn hleypur í öskufokinu
Hjónin sem hlaupa til styrktar krabbameinssjúkum börnum fóru frá Klaustri í gær og fengu nokkuð öskufok á Skeiðarársandi. Vegna þessa þurftu þau að vera með buff fyrir vitunum og sumir settu jafnvel upp sundgleraugu.

Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, sést hér á myndinni hlaupa í sandfokinu. Sveinn hefur ásamt Signýju Gunnarsdóttur eiginkonu sinni fylgst syni sínum í gegn um erfiða meðferð við hvítblæði.

Þau hlaupa hringinn í kring um landið ásamt systur Sveins og mági, Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur og Guðmundi Guðnasyni.

Fólk getur styrkt framtakið með því að senda sms í símanúmerin 904-1001 (1000 kr.), 904-1003 (3.000 kr.) og 904-1005 (5.000 kr.) eða komið með áheit á vefsíðu söfnunarinnar, www.mfbm.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×