Viðskipti innlent

Ragnar Önundarson segir sig úr stjórn LV

Ragnar Önundarson ætlar að segja sig úr stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV). Þetta kemur fram í bréfi sem hann hefur sent stjórninni.

Í tilkynningu segir að í ljósi nýrra upplýsinga sem fram komu í Kastljósi Sjónvarpsins í gær hafði formaður VR, Kristinn Örn Jóhannesson samband við Ragnar Önundarson en hann situr í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir hönd félagsins. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er einn öflugasti lífeyrissjóður landsins og gegnir leiðandi hlutverki í endurreisn efnahags- og atvinnulífi landsins.

Fyrir hádegið í dag afhenti Ragnar Önundarson formanni VR bréf þar sem hann skýrir frá að hann hafi dregið sig í hlé frá störfum í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Hann hefur óskað eftir að varamaður verði boðaður á stjórnarfund sem verður haldinn í hádeginu í dag.

Ragnar skýrir í bréfi sínu jafnframt frá því að hann hafi í hyggju að láta að fullu af störfum í stjórninni í nánara samkomulagi við stjórn VR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×