Þvílík gleði um helgina. Svo sannarlega helgi sem verður lengi í minnum höfð.
Frábært!
Það sem er samt ekki eins frábært er þynnkan sem svo sannarlega er mætt á staðinn. Og þó átta tíma vinnudagur til að lifa af í dag.
Flest góðu ráðin eru fyrir bí nú þegar. Til dæmis þetta með að drekka ekki of mikið um helgi, borða hollt og sofa í átta til níu klukkustundir.
Neibb, ekki raunhæft eftir svona helgi.
Þannig að hér koma nokkur góð ráð sem miðast einfaldlega við þá staðreynd að þú þurfir að lifa af hræðilega þynnku í dag.
1. Leið til að svitna?
Ræktin er ekkert endilega það sem þér dettur helst í hug fyrir hádegið í dag. Mögulega er það frekar hamborgari og franskar sem kalla. Staðreyndin er hins vegar að sviti hjálpar okkur við að losna fyrr við þynnku, þannig að eitt gott ráð er að setja þér markmið um að svitna!
2. Drekktu vatn eins og þú fáir borgað fyrir það
Alla daga eigum við að drekka vel af vatni. Í dag er samt mikilvægt að drekka extra vel af vatni. Já einfaldlega eins og þú fáir borgað fyrir að drekka vatn.
Ýmsir luma síðan á alls kyns ráðum; Gatorate, söltum og svo framvegis. Við látum það kyrrt liggja hvað þykir best en aðalmálið er að þú vökvir þig duglega þannig að já; fylltu á brúsann!
3. Píndu í þig morgunmat
Þótt þig langi alls ekki í morgunmat og hafir enga lyst til að fá þér að borða, er morgunmaturinn þó góð leið til að losna fyrr við þynnku. Egg væru frábær, þó ekki væri nema á brauð en líka ávextir eða ein ristabrauðsneið.
4. Ekki bara morgunsturta
Þennan morguninn þarftu að gefa þér smá extra stund á baðherberginu. Því til viðbótar við góða sturtu er mælt með því að gefa sér extra tíma í allt annað: Bursta tennurnar sérstaklega vel og nota síðan munnskol, nota sjampó tvisvar en ekki einu sinni, raka þig ef það á við eða bera á þig body lotion.
Allt sem getur hjálpað þér við að upplifa þig frískari er af hinu góða. Þetta er þannig dagur.
5. Svörtu fötin verða eftir heima í dag
Loks er það að nýta okkur liti því já, það getur hjálpað okkur að upplifa okkur hressari ef við klæðumst einhverjum litum sem bjart er yfir. Svörtu fötin verða því eftir heima í dag og um að gera að mæta litrík og björt til vinnu í dag.
Hvar eru rauðu sokkarnir?