Erlent

Herforingjar flýja frá Líbíu

Átta herforingjar frá Líbíu komu fram á blaðamannafundi á Ítalíu í gær, þar sem þeir sögðust hafa sagt skilið við Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Þeir sögðu æ fleiri herforingja vera að hlaupast undan merkjum og nú væri geta hersins aðeins um fimmtungur af því sem hún var.

 

Jakob Zuma, forseti Suður-Afríku, hélt á fund Gaddafís í gær og sagði hann vilja vopnahlé. Hann setti þó enn svipuð skilyrði og fyrr. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×