Körfubolti

Haukaliðið með tak á KR - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
Haukakonur unnu frábæran 70-58 sigur á KR í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi en það voru mörg óvænt úrslit í umferðinni í gær en þrjú efstu liðin, Keflavík, Njarðvík og KR, töpuðu öll sínum leikjum.

Haukarliðið var að vinna KR í annað skiptið í vetur en sigurganga KR í upphafi móts endaði einmitt á Ásvöllum í sjöttu umferðinni. Haukar taka síðan á móti KR í 16 liða úrslitum bikarsins í næsta mánuði og það eru ekki alltof góðar fréttir fyrir KR-konur miðað við úrslitin í leikjum liðanna til þessa í vetur.

Haukar létu það ekki stoppa sig að lenda 0-8 undir í upphafi leiks, því þær unnu lokakafla fyrsta leikhlutans 8-0, unnu annan leiklutann 26-13 og voru komnar með fimmtán stiga forskot í hálfleik, 41-26. KR kom aðeins til baka í seinni en Haukastelpurnar kláruðu leikinn með flottum endaspretti.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum í DHL-höllinni í gærkvöldi og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×