Telja stjórnmálaflokka forðast þjónustu skattlagðra fyrirtækja 31. maí 2011 07:00 Samtök ferðaþjónustunnar segja ríkisstjórnarflokkana funda í sölum opinberra stofnana þar sem ekki sé greiddur virðisaukaskattur. Fréttablaðið/GVA „
Það er ömurleg staða að stjórnmálaflokkarnir skuli vera búnir að skattleggja fyrirtækin svo harkalega að þeir verði sjálfir að forðast þjónustu þeirra,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar. „Það hefur vakið athygli þeirra fyrirtækja sem leigja út ráðstefnusali að stjórnmálaflokkar hafa að undanförnu haldið flokksþing sín í skólastofnunum,“ segja Samtök ferðaþjónustunnar og benda á að skólarnir þurfi ekki að standa skil á virðisaukaskatti vegna slíkrar útleigu. Tvö dæmi er tiltekin af því að ríkisstjórnarflokkarnir hafi haldið fundi í skólum. Vinstri græn hafi fundað tvívegis í Hagaskóla í fyrra. Um síðustu helgi hafi Samfylkingin haldið flokksþing í Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Sá skóli hafi að vísu starfsleyfi en sökum fárra funda á ári fái hann undanþágu frá virðisaukaskatti. Þá hafi fyrirspurn Samtaka ferðaþjónustunnar í nóvember í fyrra til Hagaskóla um starfsleyfi og greiðslu virðisaukaskatts verið áframsend til borgarlögmanns, sem enn hafi hafi ekki svarað. Enn fremur kemur fram að í Háskóla Íslands sé umfangsmikill ráðstefnurekstur sem ekki sé allur á vegum skólans. Þar sé virðisaukaskattur ekki rukkaður. „Það ríkir gríðarleg samkeppni á þessum markaði og fyrir löghlýðin fyrirtæki er erfitt að eiga í samkeppni við opinberar stofnanir sem þurfa ekki að standa skil á virðisaukaskatti,“ segja Samtök ferðaþjónustunnar. - gar
Mest lesið Starbucks opnar á Íslandi Viðskipti innlent Orðrómur um Appelsín ósannur Neytendur Bjórinn á rúmlega tvö þúsund krónur í erfiðum rekstri Neytendur Íslenskt súkkulaðistykki ódýrara í Svíþjóð en á Íslandi Neytendur Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Neytendur Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Neytendur Að forðast að háma í okkur eftir vinnu Atvinnulíf Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Tælenskt hveiti úr umferð Neytendur Á von á nokkrum tilboðum í næstu viku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Starbucks opnar á Íslandi Á von á nokkrum tilboðum í næstu viku Ný þjónustumiðstöð opnuð við Landeyjahafnarafleggjarann Þóra frá VIRK til Visku Þórður Snær segir skilið við Heimildina Skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Hótelgistinóttum fækkar á landsvísu Friðbjörn tekur við Unimaze Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Aðstoðarforstjóri Play hættur Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Bein útsending: Play kynnir uppgjör Barátta Seðlabankans löngu töpuð Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Gústi Jó ráðinn markaðsstjóri Vöruverndar Verðbólgutölur minnki líkur á vaxtalækkun „allverulega“ Þekkja engin dæmi um að lögheimilisskráning stöðvi fasteignasölu Eyþór fyllir í skarð Rósu hjá Heimum Verðbólga eykst milli mánaða Stýrivextir mögulega ekki lækkaðir fyrr en í febrúar „Ljóst að staðan er mjög strembin“ Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi Fækkun ferðamanna gæti komið íbúðum á markað Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Fá hundrað milljónir til að þróa gervigreind Styrkás kaupir Kraft Landsliðskokkur kaupir hverfisstaðinn: „Þetta gerðist í rauninni bara mjög hratt“ KFC á Íslandi segir meinta ljósmynd viðskiptavinar „falska“ Sjá meira