Lífið

Jessica alltaf grátandi

ljómar Jessica Simpson borðar nær eingöngu hnetusmjörssamlokur og salt þessa dagana.
ljómar Jessica Simpson borðar nær eingöngu hnetusmjörssamlokur og salt þessa dagana.
Söngkonan bandaríska Jessica Simpson grætur þessa dagana af minnsta tilefni. Ástæðan er sú að hún gengur með sitt fyrsta barn, og segir að óléttan geri það að verkum að hún tárist yfir öllu og engu.

„Biti af frábærri súkkulaðiköku myndi jafnvel geta grætt mig,“ var haft eftir söngkonunni í viðtali á dögunum. Simpson og unnusti hennar, Eric Johnson sem leikur í bandarísku NFL-deildinni, eru mjög hamingjusöm saman og hlakka til að fá frumburðinn í hendurnar. „Ég fann það hreyfa sig í fyrsta sinn um daginn og hágrét yfir því. Þetta var eitt það besta sem ég hef upplifað um ævina,“ sagði Simpson, sem á von á sér í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.