Setja Páfagarði stól fyrir dyrnar 22. júlí 2011 00:00 Enda Kenny Forsætisráðherra Írlands er kominn til Brussel að ræða fjárhagsvandræði evruríkjanna. fréttablaðið/AP
Írar hafa almennt fagnað harðorðri ræðu Enda Kenny forsætisráðherra í garð Páfagarðs, þar sem hann fordæmdi dræm viðbrögð Páfagarðs við uppljóstrunum um kynferðislegt ofbeldi innan kirkjunnar undanfarin sautján ár. Hann sagði Páfagarð hafa gert lítið úr barnanauðgunum og barnapyntingum og skýla sér á bak við leyndarhjúp trúarvaldsins. Írar taka almennt undir þessa gagnrýni og krefjast þess að Páfagarður geri loks hreint fyrir sínum dyrum og takist á við þennan óhugnað. Fréttaskýrendur og sagnfræðingar segja þetta jafnast á við byltingu á Írlandi, þar sem almenningur hefur jafnan haft mjög sterkar taugar til kaþólsku kirkjunnar. Áratugum saman hafa írskir stjórnmálamenn leyft kaþólsku kirkjunni að hafa síðasta orðið um lagasetningar. Gagnrýni á kirkjuna var nánast ávísun á tap í kosningum. Nú taka meira að segja kaþólskir prestar almennt undir gagnrýni forsætisráðherrans. „Yfirgnæfandi meirihluti venjulegra presta er ótrúlega pirraður á því að Páfagarður viðurkenni aldrei mistök, vilji engar viðræður og láti þennan skugga hvíla yfir okkur öllum. Það er ekki sanngjarnt,“ segir Tony Flannery, leiðtogi samtaka kaþólskra presta á Írlandi.- gb
Mest lesið Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Innlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Innlent Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Innlent Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Erlent Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Erlent Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Innlent Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Fleiri fréttir „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Sjá meira