Innlent

Fjórir á slysadeild eftir árekstur við Bústaðaveg

Áreksturinn varð á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar
Áreksturinn varð á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar
Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar nú fyrir stuttu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru fjórir fluttir á slysadeild, en enginn mun vera alvarlega slasaður.

Tækjabíll slökkviliðsins fór á staðinn en í fyrstu var talið að það þyrfti að klippa farþegana út úr bílunum. Svo reyndist ekki vera. Talið er að ökumaður bifreiðar hafi blindast af sól og klesst aftan tvo aðra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×