Handbolti

Guðmundur: Verður ekki auðvelt að fækka í hópnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var að sjálfsögðu mjög ánægður með sigrana tvo á Þýskalandi um helgina.

Ísland vann í dag fjögurra marka sigur á Þjóðverjum, 31-27, í síðari æfingaleik liðanna og heldur nú á HM í Svíþjóð með fullt sjálfstraust.

„Ég er ánægður með tvo sigra á móti mjög góðu liði," sagði Guðmundur. „Fyrst og fremst var það varnarleikurinn sem var að fleyta okkur þetta lant. Við lögðum grunninn að sigrinum með honum og svo mjög fínni markvörslu. Ég var líka ánægður með sóknarleikinn."

„Ég notaði alla átján leikmenn sem voru á skýrslu og það var jákvætt að fara í gegnum leikinn á þann hátt og vinna hann samt. Allir sem komu við sögu í dag skiluðu sínu."

„En þetta eru æfingaleikir og gefa okkur ákveðin fyrirheit. En það er enn enginn sigur kominn í hús á HM og við þurfum því að halda áfram að vinna vel í vikunni og fylgja þessu eftir."

Guðmundur hefur lagt ríka áherslu á varnarleikinn í undirbúningnum fyrir þessa leiki og það skilaði sér. En hvað með sóknarleikinn?

„Við getum orðið enn betri í honum og eigum mikið inni þar. Við munum núna vinna í honum og við þurfum til að mynda að æfa okkur betur í að spila gegn framliggjandi vörn. Það er ýmislegt sem þarf að fínstilla og hann á eftir að verða betri. Hann var þó alls ekkert vandamál í þessum leikjum en við getum bætt okkur samt á flestum sviðum."

Nú þarf Guðmundur að skera niður í æfingahópnum um þrjá leikmenn áður en liðið heldur til Svíþjóðar.

„Ég gerði mér ekki það ekki auðvelt í þessum leik enda komu hér menn inn í dag sem stóðu sig mjög vel. Ég verð því að gjöra svo vel og finna út úr því. Ég mun nota morgundaginn og kannski mánudaginn líka til að liggja undir feldi og taka svo rétta ákvörðun."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×