Innlent

Varla helmingur fanga öryrkjar- Verið að spila á kerfið

Fangelsismálastjóri dregur stórlega í efa að helmingur fanga á Íslandi séu öryrkjar í raun og veru en þessi hópur þiggur örorkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Líklega sé verið að spila á kerfið.

Greint var frá því í kvöldfréttum í gær að rétt um helmingur allra fanga á Íslandi þiggur örorkubætur frá Tryggingastofnun. Alls eru 152 fangar í fangelsum landsins og 74 þeirra þiggja bætur, meðal annars örorkulífeyri, örorkustyrk eða vasapeninga. Laun upp á þrjátíu og tvö þúsund á mánuði sem fangar fá fyrir vinnu sína á bak við lás og slá skerða ekki bætur þeirra. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir þetta koma verulega á óvart.

„Mér finnst algjörlega út í hött að fimmtíu prósent fanga geti verið öryrkjar ég er reyndar ekki læknisfræðilega menntaður en miðað við mína þekkingu þá finnst mér þetta alveg ótrúlegt. Hins vegar svo það liggi fyrir þá sendir Fangelsismálastofnun lista til Tryggingastofnunar og Vinnumálastofnunar yfir fanga í afplánun. Þannig að Tryggingastofnun hefur haft upplýsingar um alla þá sem sitja inni," segir Páll.

Hann segir upplýsingar um örorkumat fanga ekki hafa borist fangelsismálayfirvöldum þrátt fyrir að TR hafi allar upplýsingar um fanga í afplánun. „Það er erfitt fyrir mig að segja annað en að þarna séu menn einfaldlega að reyna spila á kerfið og það er mjög slæmt því fangar fá greiðslur fá Fangelsismálastofnun. Það er nauðsynlegt að við vitum hverjir fá örorku svo við getum látið af okkar greiðslum til þeirra," segir Páll.

Hann segir að Fangelsismálastofnun og Tryggingastofnun ætli að funda um upplýsingastreymi milli stofnananna á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×