Erlent

Sérstök deild rannsakar hryðjuverkin

Blómahafið og aðrir munir sem settir höfðu verið á torg fyrir framan dómkirkjuna í Ósló voru fjarlægðir í gær. Bréf og kort verða varðveitt.
Blómahafið og aðrir munir sem settir höfðu verið á torg fyrir framan dómkirkjuna í Ósló voru fjarlægðir í gær. Bréf og kort verða varðveitt. Mynd/AP
Sett verður upp sérstök deild innan norsku lögreglunnar sem mun rannsaka hryðjuverkaárásirnar hinn 22. júlí, sem urðu 77 manns að bana.

Lögreglan hélt blaðamannafund í gær þar sem meðal annars var greint frá þessu. Mikill fjöldi lögreglumanna kemur að rannsókninni og lögregla nýtur aðstoðar evrópsku lögreglunnar Europol og FBI, bandarísku alríkislögreglunnar.

Anders Behring Breivik var yfirheyrður í þriðja sinn í gærdag. Þrátt fyrir að hann hafi játað á sig verknaðinn er mörgum spurningum ósvarað. Lögreglan hefur lagt áherslu á að komast að því hvernig hann fjármagnaði verknaðinn og við hverja hann hefur haft samskipti undanfarið. Lögreglan hefur sérstakan áhuga á því að skoða bankareikninga sem Breivik gæti hafa opnað og tæmt.

Sjálfur hefur Breivik sagst vera hluti af stærri samtökum sem hafi hryðjuverkasellur um Evrópu, en lögregla hefur ekki fundið nein merki um að það eigi við rök að styðjast. Þá hefur verið upplýst að Breivik hringdi sjálfur í lögregluna frá Útey og sagði meðal annars að verkefninu væri lokið. Símtalið tók aðeins um þrjár sekúndur.

Mikill fjöldi fólks hefur sótt útfarir fórnarlamba hryðjuverkanna. Nokkrir hafa verið jarðsettir á hverjum degi fram til þessa, en tugir verða jarðsettir í dag og á morgun. Ráðherrar og aðrir háttsettir innan Verkamannaflokksins hafa verið viðstaddir útfarirnar, og hefur að minnsta kosti einn fulltrúi flokksins verið við hverja útför ungmennanna sem létust í Útey.

Hafist hefur verið handa við að hreinsa upp blómahafið og aðra hluti sem skildir voru eftir við dómkirkjuna í Ósló til minningar um fórnarlömbin. Öllum kortum og bréfum verður safnað saman og þau geymd á bókasöfnum í framtíðinni. Þannig verður hægt að sjá hvað venjulegt fólk hafði að segja um voðaverkin 22. júlí.

thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×