Innlent

Gjald fullorðinna hækkar en barna lækkar

Árbæjarlaug
Árbæjarlaug
Nú um áramótin breyttist gjaldskrá sundstaða í Reykjavík og hækkar stakt gjald fyrir fullorðna í 450 krónur en lækkar fyrir börn í 100 krónur. Gjaldskylda fellur niður við 70 ára aldur og miðast við afmælisdag. Þá eru rafræn kort sem hafa verið gefin út á 67 ára og eldri á árinu 2010 gilda áfram.

„Þá hefur reglum varðandi aldurstakmarkanir án fylgdarmanns í sund verið breytt og mega börn sem fædd eru árið 2001 og fyrr fara í sund án fylgdarmanns," segir á vef Reykjavíkurborgar.

Nýju gjaldskránna er hægt að skoða hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×