Erlent

Síðasta upptakan með Osama bin Laden á netið

Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hafa lagt síðustu hljóðupptökuna með Osama bin Laden fram á netið.

Þar hrósar Osama uppreisnarmönnum í Túnis og Egyptalandi og hvetur aðra múslima til að nýta sér einstakt sögulegt tækifæri til uppreisnar gegn einræði. Hann segir einnig að al-Kaída muni veita uppreisnarmönnum ráðgjöf og stuðning í baráttu sinni.

Upptakan sem er rúmlega 12 mínútur á lengd hefur verið birt á ýmsum múslímskum netsíðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×