Innlent

Saltsýruleki hjá Becromal - slökkvilið dælir

Verksmiðja Becromal
Verksmiðja Becromal Mynd úr safni
Gat kom á saltsýrutank í verksmiðju Becromal á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á Akureyri er ekki talin hætta á ferðum og hafa engin slys orðið á fólki. Slökkvilið vinnur að því að dæla saltsýru úr leka tankinum í annan heilan.

Saltsýran er geymt í sérstöku húsi við hliðina á verksmiðjuhúsinu. Undir tankinu er síðan þró sem var sérstaklega gerð til að taka við ef tankurinn færi að leka.

Starfsfólk Becromal fór allt út úr húsinu þegar lekinn uppgötvaðist og hafði samband við slökkvilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×