Erlent

Hátt í 700 lögregluforingjar reknir

Mynd/AP
Hátt í 700 lögregluforingjar í egypsku lögreglunni hafa verið reknir vegna aðkomu þeirra að drápum á mótmælendum fyrr á árinu. Þá mótmæltu milljónir Egypta og kröfðust umbóta og afsagnar Hosni Mubarak, þáverandi forseta landsins. Talið er að allt að þúsund mótmælendur hafi verið myrtir í átökunum.

Innanríkisráðherra Egyptalands tilkynnti um brotrekstur lögregluforingjanna um leið og hann greindi frá því að kosningunum sem fram áttu að fara í september hefur frestað fram í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×