Erlent

Bauluðu og hrópuðu að Amy Winehouse

Mynd/AFP
Fjölmiðlar í Serbíu segja tónleika bresku tónlistarkonunnar Amy Winehouse sem fram fóru í Belgrad í gærkvöldi hneyksli og söngkonunni til minnkunar.

Winehouse átti erfitt með að muna söngtextana sem hún auk þess muldraði, en hún var áberandi drukkin þegar hún steig á svið. Hátt í 20 þúsund tónleikargestir leyndu ekki vonbrigiðum sínum og bauluðu á söngkonuna og gerðu hróp að henni. Tónleikarnir voru þeir fyrstu í stuttri tónleikaför Winehouse um Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×